Hef ekki átt svona yndislega helgi allt of lengi, við tileinkuðum þessarri helgi heimsóknir til vina og fjölskyldu í Sunný Kef. Við rúlluðum suður uppúr eitt á laugardaginn og var fyrsta stoppistöð hjá Halldóru og Ty. Fengum við ekki þessa líka dýrindis ostaköku að hætti chees cade factory. Nimmi nimm. Alltaf jafn yndislegt að hitta þau og það var glatt á hjalla. Vilberg og Heiðrún kíktu við líka og var því mikið spjallað og hlegið. Yndislegt að hitta þau og eiga með þeim góða stund. Heiðrún er orðin svo myndó.
Næst skruppum við í pönnsur til múttu gæs pabba gamla og var það nú ekki af verri endanum. Sátum þar í dá góða stund og spjölluðum og allir hressir og kátir, alltaf jafn gaman að kíkka á N26. Thelma var fersk lika ;)
Enduðum ferðina til Tengdó og B8 og þar hittum við Þóreyju lilju líka og var að sjálfsögðu glatt á hjalla eins og alltaf. Fengum kvöldmat og horfðum á spaugstofuna og fórum svo heim í heiðar dalinn.
Laugardagurinn fór sem sagt í hitting og át í orðsins fyllstu merkingu.
Það er alls staðar verið að ýta því að mér að ég byrji á Herbalife, þrír í vinnunni eru byrjaðir á þessu og svo tengdó ... mig dauðlangar að prófa þetta í 3 vikur, bara svona til að taka smá skurk í símaátakinu... Hvað finnst ykkur um það ? Er þetta bull í mér eða á ég að láta vaða ? Bóndinn minn er ekki á því að ég taki þetta og segir nei nei nei nei nei ... þetta er að sjálfsögðu skyndilausn .... en tilhugsunin er ágæt samt ...
Hvað finnst þér ?
15. febrúar 2009 klukkan 12:58
María Kristins 5 athugasemdir
Jæja ágætu lesendur, svakaleg vanræksla hér hjá mér, ástæðan er bæði leti og tímaleysi, það hefur verið mikið að gera hjá mér líka, mikið af breytingum í vinnunni og svo fram eftir götunum.
Ég held að ég geti mér rétt um að flestir lesendur þessarrar síðu hafi helst gaman af því að fylgjast með heilsueflingu minni, enda er ég ansi oft í slíkum hugleiðingum og næ oft góðum árangri. Staðan er nokkuð góð núna og hlakka ég til næstu viktunar hjá Síma þjálfanum. En það er búið að setja dagsetningu í kringum 24.feb. Þá er átakið formlega hálfnað.
Ég fer í ræktina á hverjum degi og tek ýmist brennslu eða lyfti. Síðan tek ég göngutúra líka með þegar ég er í miklu stuði.
Þetta er ógeðslega gaman, það er mikill andi í liðinu mínu og stöndum við okkur mjög vel í að safna punktum fyrir hverja þá hreyfingu sem við gerum. Ég hef fulla trú á okkur.
Börnin voru að koma heim eftir tveggja daga dvöl hjá ömmum og öfum í Keflavíkinni. Það var frí í leikskólanum í dag. meina það þessar kjetlur eru ALLTAF í fríi. Þetta er að jafnaði 1 x í mánuði og er ég orðin asskoti þreytt á þessu. Meina þetta er þjónustu stofnun sem við eigum að geta treyst á. Þoli þetta ekki !
Ég brunaði svo í kef eftir vinnu í dag til að sækja börnene, þvoði bílinn minn og ekki veitti af því. Þvílikur skítur sem var á bílnum. Sá varla í lit bílsins vegna seltu og ógeðs.
Jæja ætla að koma krökkunum í háttinn og taka saman dótið fyrir ræktina í fyrramálið, á pantaðan tíma á hlaupabrettinu kl 5.50.
Mæsa
10. febrúar 2009 klukkan 20:40
María Kristins 2 athugasemdir
Já það er allt að gerast hjá Símanum. Ég hef sett saman gríðarlega strerkt lið fyrir heilsuátakið hjá Símanum. Um er að ræða þungaviktarfólk, vaxtatröll og fólk í millivikt sem ætlar sér uppí þungavikt... já já já allt að gerast sko ... Verða svo teknar fyrir og eftir myndir, fyrir og eftir mælingar og ummál. 11 vikna keyrsla og vegleg verðlaun fyrir vinningshafa, hef ég heyrt.. hvað svo sem er á bak við þau orð hef ég ekki hugmynd um !
Liðið höfum við í hópnum skírt The Biggest Loser 2009, lógóið fyrir þetta flotta lið er ekkert öðruvísi en þetta !
Jæja, hvernig líst ykkur á ? Nýtt lúkk, ný mynd í hausnum sem er að sjálfsögðu Síminn. Já ég fékk að heyra það í einni bústaðarferðinni með Vestmannaeyja klúbbnum, Mæja Það er síminn ! Held það sé ansi mikið til í því. En í þeirri ferð var ég í símabol, með símahúfu, í símaúlpu og með Símatösku að mig minnir. Stolltur síma starfsmaður þarna á ferð.
Já eins og ég sagði að þá var von á einhverju booom booom boomm. Ég sem sagt breytti síðunni, litnum, þemanu, uppfærði útrunnar vefsíður vina og ættingja, setti inn nýjan niðurteljara og tók til í tenglum. Eridiggi flott ?
Það var gaman að sjá athugasemdirnar ykkar í síðustu færslu, Spennó hafði rétt fyrir sér með skólann en ekki óléttuna, það er ekki barn á leiðinni og allra síst á planinu hjá okkur hjónum. Þar hafiði það!
Nýja árið fer vel í fjölskylduna, nýjir og spennandi tímar, maður fær að upplifa alvöru kreppu og allt sem fylgir henni, buddan léttist mánuð eftir mánuð og áhyggjur fólks og svona en ég hef ákveðið að taka þessu eins og daman í áramótaskaupinu þegar hún fer í bankann og segist vera svo heppin að fá að lenda í þessu ævintýri. Ég ætla að gera slíkt hið sama og gerast þátttakandi í ævintýrinu. Smá pollý önnu leikur hjá Mæsu. Trúiði því að ég hef aldrei lesið bækurnrar um Pollý Önnu, en mér er sagt að hún hafi verið einstaklega jákvæð, bjartsýn, hress og úrræðagóð.
Næsta verkefni á listanum hjá mér er lífsstílsbreyting, já markmið hefur verið sett og nú er að vinna að settu marki eins og ég gerði í fyrra. Markmið mitt er að ná af mér 25 kg á árinu.
Ég hitti þjálfara í World Class á miðvikudaginn og hún ætlar að mæla mig 1 x í mánuði og þannig ætla ég að fylgjast með mér. Spennandi að fylgjast með því hér hummm ég skal leyfa ykkur að fylgjast með hér.
Eins leiðinlegt og það er að segja frá því að þá bætti kjetlan á sig 8 kg frá byrjun nóv - 8.janúar (þegar mælingin fór fram). Þannig að það er stórt og mikið og skemmtilegt verkefni framundan.
Við Birna ætlum að fara saman í þetta ævintýri , ásamt því hef ég, Dóra og Tyrfi búið til hvata teymi sem við ætlum að styðjat við. Ótrúlega sniðugt og hvetjandi.
Skólinn er byrjaður aftur líka svo það er nóg að gerast hjá mér þessa daganna.
Jæja höfum þetta ekki lengra að sinni. Ciao
10. janúar 2009 klukkan 23:16
María Kristins 3 athugasemdir
Það þarf nú að fara að uppfæra þetta blogg sko... fer í það á næstu dögum.. dokið við ... nýjir og spennandi hlutir settir hér inn og ýmislegt upplýst... já það er margt sem á eftir að koma ykkur á óvart ... bomm booomm booommm
07. janúar 2009 klukkan 21:36
María Kristins 6 athugasemdir
Já þetta líður allt saman hvort sem maður er búin að öllu eður ei... Ég er í þeim ágæta hópi að vera búin að öllu og bíð bara.. Ég vinn á morgunn til hádegis og svo brunum við í jólin í Kef. Verður gaman að fara suður.
Ég fékk mér skötu í hádeginu í dag í vinnunni og hún var ansi mikið kæst. Hefði ekki boðið í tindabikkjuna.
Vikan hefur aldeilis liðið hratt, ég kláraði að versla jólagjafirnar og er æðislega ánægð með það, gerði þetta allt á einu kveldi, svo er ég að vinna sjáf að einni jólagjöfinni og verður því spennandi að sjá hvort það takist fyrir jól.
Við Jón Óskar fórum uppá leikskóla á fimmtudaginn að sjá jólasýninguna sem Jón Ársæll og hans hópur höfðu verið að æfa síðustu vikur og heppnaðist það að sjálfsögðu rosalega vel. He´s got the talent ;)
Það var aðeins kinnt undir jólastemmararnum í vinnunni á föstudaginn en mötuneytið var með jólamáltíð og var hún vægast sagt góð. Við skreyttum aðeins í fyrrakvöld en klárum í kvöld að setja upp seríurnar.. Kannski maður skelli bara upp trénu líka ef maður er í stuði.
Í dag er svo jólaball Símans á broadway og mætum við að sjálfsögðu þangað með börnin enda alltaf vel heppnað jólaball og mjög gaman að fara með börnunum og eiga svona spes familý time þar sem við tökum öll þátt í gleðinni. Eftir ballið verður svo komið heim og piparkökur málaðar. Þessi dagur verður því í anda jólanna og algjörlega tileinkaður börnunum.
Á morgunn er svo skógarhöggsferðin með Símanum í Brynjudalinn og skráðum við okkur í þá ferð en það eru ekkert geggjaðar undirtektir í familýunni þannig að við verðum víst að bíða og sjá hvernig stemmarinn verður á morgunn.
Langar annars að skreppa í íkea og kaupa pappír, merkimiða og skraut fyrir pakkana og aðeins að dóla okkur saman. Alltaf gaman að koma í Íkea.
Við fórum annars síðustu helgi í afmæli til ömmu Siggu minnar en hún var 81 árs þessi elska, henni þótti voða gaman að sjá fjölskylduna saman komna hjá Tefí frænku, borða saman kökur og nýbakaða snúða og pönsur líkt og hún sjálf gerði svo oft í gamla daga.. Alltaf gaman að hitta familýuna. Gerist allt of sjaldan. En það taka við jólaboðin og þar hittumst við nú öll aftur.
Jæja eigiði yndislega helgi elskurnar og njótið fjölskyldutímans sem þið eigið. Hann er eitt það dýrmætasta sem við eigum... Tíminn með fjölskyldunni.
Í stærðfræði prófinu í kvöld gekk út með bros á vör og hlakka til að fá einkunnina mína, Enskan gekk líka rosalega vel og er ég með áunna meðaleinkun uppá 8.9. Bara geggjað
Fórum uppá læknavakt enn einu sinni með Evu Lind en í þettað skiptið var farið á Dómus Medica barnavaktina þar. Kemur í ljós að hún er með Þurr lungnabólgu sem er eitt af astma einkennum. Fékk í kjölfar sterkara púst sem hún fær 2 x á dag næstu 10 daganna. Svo verður skammturinn minnkaður og fer aftur til læknis til að ath hvernig gengur.
Framundan er svo jólaskraut, jólahlaðborð, jólatónleikar og bakstur með familýunni
Jæja ég er hætt í bili, ætla að chilla og rotast snemma í kvöld.
04. desember 2008 klukkan 20:31
María Kristins 3 athugasemdir
Eða mig, að það er nóg að gera hjá mér þessar vikurnar, það er sjaldan sem það líður svona langt á milli frærslna enda hef ég fengið nóg af commentum um hvort að ég ætli ekki að fara að skjóta inn færslu og segja einhvernar fréttir af mér og mínum.
Það hefur verið nóg að gera í vinnunni hjá mér núna síðustu 3 vikur og það er alltaf gleði þegar nóg er að gera eða eins og ég segi, það er í það minnsta betra en að ekkert sé að gera.
Ég get státað mig af því að það gengur súper vel í skólanum og nú er ég búin að taka tvenn lokapróf og aðeins eitt eftir. Stærðfærðin er eftir og er það próf á fimmtudaginn. Verð að viðurkenna og segja að ég kvíði því mjög mikið enda hefur það alltaf verið minn akkilesar hæll gegnum mína skólagöngu þar til nú reyndar. En ég verð allan daginn á morgunn og eitthvað fram á nótt í heimahúsi eins nemandans í bekknum en við ætlum að hittast fjögur og læra vel undir stærðfræðiprófið.
Á föstudaginn er svo jólaglögg í vinnunni, jólahlaðborð á laudagdagskvöldið og jólatónleikar kvennakórs Reykjavíkur á sunnudaginn, að sjálfsögðu verður svo helgin notuð til að skreyta heimilið og jafnvel að ég baki nokkrar sortir af smákökum fyrir júlene. Sjáum til hvað ég afreka. Ég er ekki búin að kaupa eina einustu jólagjöf og þarf að fara í það fljótlega.
Við verðum hjá tengdó á aðfangadag það er eitt af fáu sem hefur verið ákveðið fyrir jólin ásamt því að vera hjá foreldrum mínum á Gamlárskvöld, sem sagt keflvísk jól í ár. Ég hlakka til samverunnar með fjölskyldunni og þeim sem ég elska mest. Við hjónin höfum afþakkað allar jólagjafir til okkar beggja og hafa það að aðalatriði að gleðja börnin. Þetta verða því sparnaðarjól í anda kreppunnar ;) Sem er í sjálfu sér ekkert það versta, við erum svo heppin að eiga stóra og góða fjölskyldu, tvö yndisleg börn og svo að sjálfsögðu eigum við Jón hvort annað... yndislegt.
Af heilsufarsmálunum er ekkert sérstakt að frétta, ég bætti á mig 4 kg á nokkrum vikum og er 1.2 kg farið af af þeirri upphæð ;) Leikfimin gengur mjög vel en það er mataræðið sem er ekki alltaf nógu gott. Ég á svona dag og dag sem er góður, ekkert mikið meira en það. Draumurinn var að missa 4 kg fyrir jól, sjáum til hvernig það fer, það er aðeins 1.2 kg farið af því markmiði og aðeins tæpar 3 vikur til jóla.
Annars er ekki fleira í fréttum að sinni, njótið þess að vera saman og eiga góða fjölskyldu, elskið hvort annað og verum vinir vina okkar.
Tjáhh
02. desember 2008 klukkan 20:18
María Kristins 2 athugasemdir